Bókin Íslenskt prjón byggir fyrst og fremst á handprjónuðum munum sem varðveittir eru í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Hún inniheldur 25 prjónauppskriftir af munum sem hafa verið endurgerðir, en einnig af nýjum flíkum/munum sem hannaðir voru með skírskotun til gömlu safnmunanna. Bókin gefur góða innsýn í prjónahefð íslendinga á seinni hluta 19. og fyrri hluta 20. aldar.